|
Mikið hefur verið að gera við rannsóknir á Byggðasafninu það sem af er sumars. Stefán Þórhallsson tók Hindisvíkurbátinn sem staðið hefur við Selasetrið til gagngerar endurbætur. Hann bar á bátinn, þétti rifur, bætti við saumum, málaði o.fl. Að lokum flutti hann Hindisvíkurbátinn á Byggðasafnið Reykjum í Hrútafirði. Takk fyrir það Stefán. Skoðaðir hafa verið búningar safnsins af Karli Aspelund, meðal annars skautbúningur bæði treyja og pils í eigu Elínar Jónsdóttur Skagaströnd. Margrét Sigurðardóttir prófastfrú á Höskuldsstöðum vann búninginn á kvennaskólanum á Ytri-Ey árið 1887. Skautbúningurinn er með óvenjulegu mynstri sem er gyllt balderað, sennilega af melgresi. Einnig hefur reiðbúningurinn verið mældur upp og rissað niður sniðteikning af Karli Aspelund. Karl ætlar að grennslast fyrir um uppruna reiðjakkans og teikna af honum snið ef ástæða þykir. Reiðbúningur þessi var í eigu Ingibjargar Guðmundsdóttur frá Saurum í Miðfirði. Búið er að flytja inn á Byggðasafnið gamla báta annar er ekki nema hálfur. Benjamín Kristinsson frá Dröngum ætlar að mæla bátana upp og teikna. Upplýsingar hafa borist safninu um húsaskipan í Kúvíkum, Friðrika Sigurðardóttir dóttir Ínu Jenssen frá Kúvíkum og Sigurðar bjó í Kúvíkum til 1946 ætlar að fræða safnvörð nánar um lífshætti þar. Ína var dóttir hjónanna Karls Friðriks Jensen og Sigríðar Pétursdóttur frá Kúvíkum. En á safninu eru m.a. gripir sem Matthias Jochumson skáld gaf þeim í brúðargjöf, kanna, stofustáss hjónanna eins borðstofusett, sófasett, kommóða, orgel ofl. Kristín Böðvarsdóttir í Hveravík kom við til að fá númer af prjónavél sem móðir hennar, Gróa Oddsdóttir frá Þóroddsstöðum gaf safninu. Ætlunin er að fá nánari upplýsingar um vélina, aldur hennar, sögu ofl. |